Sanondaf Iceland er sótthreinsunarfyrirtæki í eigu BG. Sanondaf Iceland er partur af alþjóðlegu sótthreinsunarkeðjunni Sanondaf sem er með starfssemi víða um heim t.d. í Evrópu, Asíu, Suður Ameríku og Afríku.
Sanondaf býður snertilaust sótthreinsikerfi sem drepur 99,99% af öllum hættulegum gerlum, veirum, sveppum og myglu.
Þetta er gert með nýstárlegum úðabúnaði í fremstu röð þar sem sérstöku sótthreinsiefni er úðað með rafstöðuhleðslu samhliða notkun sótthreinsiefnis, SanoChem, sem hefur verið viðurkennt til þeirra nota. Kerfið er hugsað sem viðbót við hefðbundnar sóttvarnir, svo sem almennar hreingerningar.
SanoChem er fullkomlega umhverfisvænt og skaðlaust mönnum, dýrum og plöntum. SanoChem er ekki ætandi og er bæði öruggt og ráðlegt að nota það á raftæki og rafeindabúnað.
Meðal þess sem hægt er að eyða á öruggan hátt með SanoChem er eftirfarandi: COVID-19, MRSA , Noro-veirur, H1N1 og H5N1 (inflúensuveirur), Clostridium Difficile (C-diff), Escheria Coli (kólígerlar) og margt annað.
Viðskiptavinir Sanondaf eru meðal annars fyrirtæki, stofnanir, spítalar, heimili, flugfélög, flutningafyrirtæki ofl.
Þjónustusími Sanondaf er 551 2525 og eftir lokun er hægt að panta þjónustu í síma 693 1513 . Neyðarþjónusta er í boði allan sólarhringinn.